Nákvæmlega sama sætisbil er í þeim vélum Iceland Express sem notaðar eru í dag og var reyndin í eldri vélum sem ferðasalinn notaði áður þrátt fyrir auglýsingar um nýrri og þægilegri vélar.
Hafði ritstjórn spurnir af því að stöku farþegar Iceland Express síðustu daga og vikur hafi sett spurningarmerki við auglýsingar um meiri þægindi í nýrri Airbus vélum sem Iceland Express notar nú.
Í svari við fyrirspurn vegna þessa kemur fram að sætisbil er nákvæmlega það sama nú og var áður í vélum Astreus sem flaug fyrir Iceland Express. Hins vegar eru sætin mjórri í nýju vélunum en voru í þeim gömlu auk þess sem þoturýmið sjálft er breiðara.
Sætisrými er ekki það sama og fótarými. Sætisrýmið er mælt frá höfuðpúða að næsta höfuðpúða fyrir aftan og mælir því ekki fótarými eins og margir halda þó vissulega tengist þetta tvennt. Fótarými í nýrri vélum Iceland Express er því ekkert meira en áður en aðeins rýmra ætti að vera um efri hluta líkama farþega sem með Iceland Express ferðast.
Til samanburðar er því sætisrými í hefðbundnu farrými véla Iceland Express nú 29 tommur, 0,73 metrar, en sætisrými í hefðbundu farrými hjá Icelandair er 32 tommur eða 0,81 metri. Ef við tökum samanburðinn enn lengra er sætisrými sama farrýmis véla JetBlue 34 tommur, 0,86 metrar, easyJet býður farþegum sínum upp á 29 tommur eins og Iceland Express og norska lágfargjaldaflugfélagið Norwegian.






