Tíðindi

Áfengi skal þar vera heillin

  18/12/2011desember 7th, 2014No Comments

Engum blöðum er um það að fletta að stór meirihluti vill ekki sjá bann við áfengum veitingum um borð í millilandaþotum samkvæmt könnun Fararheill.

Tóku 278 aðilar þátt í könnuninni þar sem spurt var hvort hætti ætti að veita eða selja áfengi til farþega í millilandaflugi. Ekki svo að skilja að slíkt sé á döfinni en miðað við að þingmenn vilja koma tóbakssölu inn í lyfjaverslanir er ekkert fráleitara að banna áfengissölu í flugvélum.

Svöruðu 217, 78 prósent, af þeim er þátt tóku því til að það væri hreint og beint mannréttindabrot að banna slíkt meðan 61 aðili, 22 prósent, vildi gjarnan sjá slíkt bann verða að veruleika.

Tekið skal fram að vefkönnun þessi er á engan hátt vísindaleg heldur til gamans gerð. Deila má um niðurstöðurnar en þær gefa þó ákveðna vísbendingu um afstöðu fólks.