Hann er sagður vera sá kvikmyndagerðarmaður sem ferðast hefur hvað víðast um heiminn og það gert án þess að eiga mikið meira en klink í vasanum.
Graham Hughes heitir kappinn og lifir af því að ferðast og taka heimildarmyndir. Hann hefur öðlast nokkra frægð fyrir; ekki fyrir myndir sínar per se heldur fyrst og fremst fyrir að geta leyft sér löng og tíð ferðalög án þess að kosta miklu til.
Í myndbandinu hér að neðan útskýrir Hughes hvernig hann fari að því að ferðast um heiminn eins og hann gerir og að það þurfi engar milljónir í banka til að hafa efni á að flakka og lifa lífinu. Gefur hann 20 góð ráð öllum þeim er eiga þann draum í brjósti að þvælast heimshorna á milli.
Hughes þessi hefur reyndar vinnu af ferðalögum sínum þessa stundina því hann reynir nú að heimsækja öll lönd heims án þess að stíga einu sinni upp í flugvél. Er það National Geographic sem fylgist með því ferðalagi hans.






