Svindl og svínarí hjá Dohop var fréttaefni hjá fjölmiðli allra landsmanna, RÚV, þennan daginn. Í því skyni bent á danskan neytendavef. Íslenskur ferðavefur sem bent hefur á það sama um fjögurra ára skeið er hundsaður.

Svindl og svínarí hjá Dohop? Engar fréttir fyrir lesendur Fararheill.
Okkur hér almennt illa við að ota okkar tota. Okkur finnst eðlilegt að láta greinar okkar tala sínu máli og ólíkt öðrum íslenskum ferðavefmiðlum höfum við aldrei haft okkur í frammi eða reynt að gera okkur breið hjá innlendum fjölmiðlum.
Að því sögðu er súrara en tárum taki að ríkisfjölmiðill Íslands hundsi alfarið besta ferðamiðil landsins og bíði í mörg ár eftir að birta ERLENDA frétt þess efnis að ekki sé allt sem lofað er á farsæla Fróni. Við sem birtum fregn þessa efnis fyrst snemma árs 2014.
Það sem vantar líka í frétt RÚV er sú staðreynd að Dohop lofar líka LÆGSTA VERÐI á gistingu erlendis. Það stenst ekki heldur enda Dohop þar að bjóða gistingu gegnum skattaskjólsfyrirtækið Booking. Ekki þarf að leita neitt sérlega lengi á vef okkar til að finna sirka hundruð greina þess efnis að Booking sé gjörsamlega ekki að bjóða lægsta verð á einu né neinu.
En gott hjá RÚV að hundsa íslenska miðla um áraraðir og elta ólar við erlendar fregnir um kúk og kanil hjá íslenskum fyrirtækjum.







