F yrir kemur hjá ferðafólki að það þarfnast upplýsinga um vegalengdir hingað og þangað en slíkt getur verið flókið að sjá eða mæla með hefðbundnum kortum og jafnvel ekki alltaf einfalt með gps tækjum heldur. Google til bjargar.

Með netsambandi er sáraeinfalt að mæla fjarlægðir frá einum stað til annars. Engin þörf á gamaldags kortum við akstur lengur
Ýmsir annaðhvort gleyma eða vita ekki að með því að skrifa niður nafn þeirra tveggja staða sem upplýsingar vantar um í leitarglugga Google fæst undir eins leiðalýsing, kílómetrafjöldi og tíminn sem tekur að fara á milli í bifreið eða lest eða langferðabíl ef við á.
Fólk verður reyndar að nota ensku heitin yfirleitt ennþá en þá fæst á augabragði kort á borð við það sem hér er til hliðar. Þar sést að milli Mílanó og Rómar eru 574 kílómetrar og það tekur að meðaltali 5 klukkustundir og 50 mínútur að keyra á milli á A1 hraðbrautinni. Leitarorðin Milano to Rome. Þar má líka sjá hvað lest eða rúta sömu leið tekur langan tíma og fyrir þá alhörðustu hversu lengi það tekur að labba á milli.
Vægast sagt einfalt hjálpartæki ef einhver ætlar að flakka um en er í vafa um fjarlægðir og nauðsynlegan tíma. Engin þörf á sérstökum gps-tækjum ef snjallsími- eða spjaldtölva er við höndina.




