Spænska flugfélagið Vueling kemur okkur Íslendingum lóðbeint til hinnar ljúfu Rómaborgar á Ítalíu á lægra verði en Wow Air í tvo mánuði af þremur í sumar samkvæmt úttekt Fararheill.

Samkeppni alltaf af hinu góða :)

Samkeppni alltaf af hinu góða 🙂

Líklega má segja að sú staðreynd að frá og með aprílmánuði geti landinn flogið beint sem leið liggur til Rómar sé með betri fréttum úr ferðaheiminum þetta árið en að mestu leyti hingað til hafa slíkar ferðir einskorðast við stöku sérferðir innlendra ferðaskrifstofa. Við því þurft að hafa aðeins fyrir því að heimsækja þessa ítölsku höfuðborg.

Það er í apríl sem spænska flugfélagið Vueling hefur áætlunarferðir milli Rómar og Reykjavíkur og í júní bætist Wow Air í hópinn með beint flug líka yfir sumartímann.

Úttekt okkar á lægsta verði til Rómar yfir sumarmánuðina leiðir í ljós að þeir spænsku bjóða lægra verð þegar þetta er skrifað í júní og júlí en Wow Air reynist með lægsta verð í ágústmánuði eins og sést á töflunni að neðan.

* Lægsta verð aðra leið á einstakling með sköttum og gjöldum hvern mánuð fyrir sig. Enginn farangur. Verð Vueling færð yfir í krónur miðað við miðgengi dagsins. Úttekt kl. 16:08 mánudaginn 23. febrúar 2015.