Fletti fólk upp orðinu karakter í orðabók ætti að birtast þar mynd af forstjóra lággjaldaflugfélagsins Ryanair. Sá er litríkur í meira lagi og nokk sama um allar kvartanir viðskiptavina sinna. Nú hefur karlinn opinberlega blótað eigin aukagjöldum eigin flugfélags.

Meira að segja forstjóra Ryanair blöskrar öll þau aukagjöld sem lögð eru á farþega Ryanair.

Meira að segja forstjóra Ryanair blöskrar öll þau aukagjöld sem lögð eru á farþega Ryanair.

Flugfélagið Ryanair er einn brautryðjandanna í lággjaldsflugi í heiminum og var eitt allra fyrsta flugfélagið sem flutti fólk bókstaflega fyrir klink milli áfangastaða í Evrópu.

En undanfarin ár hefur félagið einnig verið í fararbroddi að planta ýmsum aukagjöldum á farþega sína og meðal annars komnar frá Ryanair þær hugmyndir að heimta greiðslu af farþegum fyrir klósettnotkun um borð og ekki síður sú frumlega hugmynd að selja standpláss í farþegaflugi. Þannig sparar flugfélagið pláss og farþegi, nenni hann að standa alla leið, fær farið á spottprís.

Í viðtali við tímaritið Management Today fór forstjórinn Michael O´Leary ekkert í grafgötur með að aukagjöldin hjá flugfélaginu sínu kostuðu hann „formúgu“ og hann hugsaði sig tvisvar um áður en hann færi í ferðalag sökum þess. Hann bætti reyndar einnig við að ferðalög og hvers kyns frí væru algjör tímaeyðsla. Hressandi og uppörvandi fyrir hugsanlega viðskiptavini.

Þess má reyndar geta að velflest þau aukagjöld sem Ryanair krafði upphaflega farþega sína um hafa nú verið tekin upp hjá fjölmörgum lággjaldaflugfélögum bæði hérlendis og erlendis.