Tenerife fyrir tæpar átta þúsund krónur. Kanarí undir átta þúsund krónum. Sikiley niður í sjö þúsund og fimm hundruð og svo má lengi áfram telja.

Flugfargjöld aðra leið með sköttum og gjöldum niður í 3.600 krónur er ekkert minna en frábært.
Og hvað nákvæmlega erum við að telja?
Þetta er brot af þeim stöðum sem spænska lággjaldaflugfélagið Vueling flýgur til frá Barcelona og flugfélagið er einmitt með sérstakt tilboðsverð á milljón flugsætum þaðan næstu mánuðina og það vel undir fimm þúsund krónum þegar best lætur.
Eins og við höfum bent fólki á er Vueling einnig ítrekað að bjóða lægsta verð á flugi héðan frá Íslandi til Barcelona og fyrir þá sem notið hafa hennar upp í kok og vilja annað og meira er fátt gáfulegra en bóka farið til Barcelona og annaðhvort halda strax áfram þaðan eða dúllast í tvo daga áður en lengra er haldið.
Sjálfsagt að skoða þetta en tilboðin eru í gildi næstu tvo sólarhringa. Bara gæta þess að hafa að lágmarki þrjár til fjórar stundir milli véla til að hafa vaðið fyrir neðan.







