Risaverslunarmiðstöðvarnar Mall of America í Minneapolis í Bandaríkjunum og West Edmonton Mall í Edmonton í Kanada eru sagðar vera skotmörk hryðjuverkamanna. Gæsla á báðum stöðum hefur verið efld til muna.

Stærstu verslunarmiðstöðvar Kanada og Bandaríkjanna skotmörk hryðjuverkamanna
Það eru hryðjuverkasamtökin Al Shabaab sem fullyrt er að hafi þessar tvær verslunarmiðstöðvar sem skotmark hryðjuverka en þegar hefur birst myndband þar sem lofað er aðgerðum gagnvart West Edmonton Mall sem er stærsta verslunarmiðstöð Norður Ameríku.
Í Kanada er ógnin tekin mjög alvarlega enda verslunarmiðstöðvar fín skotmörk sé ætlunin að deyða sem flesta almenna borgara. Þykir ekki bæta úr að vopn eru bönnuð í báðum verslunarmiðstöðvum ólíkt því sem gerist víða annars staðar. Það þýðir að innandyra er fólk óvopnað og auðveld skotmörk þeirra sem illt hafa í hyggju.
Ágætt að hafa þetta í huga svona ef verslunarferð vestur um haf er á döfinni.







