Það er vonandi að enginn íslenskur ríkisstarfsmaður sé á leið til Barcelona á Spáni með Icelandair í opinberum erindagjörðum í júlímánuði. Sú stofnun væri að fara hörmulega með fjármuni.

Gríðarlegur verðmunur á flug til og frá Barcelona
Okkur datt í hug að skoða sem snöggvast hvað það kostaði einstakling að bregða undir sig betri fætinum til Barcelona á háannatíma í júlí. Það er þá sem hvað dýrast er að gista í borginni og sömuleiðis að fljúga til og frá.
Í sem skemmstu máli, og kemur ekki á óvart í ljósi sögunnar, standa íslensku flugfélögin Wow Air og Icelandair, langt að baki öðrum samkeppnisaðilum. Að þessu sinni hinu spænska Vueling sem reynist bjóða því sem næst helmingi lægra verð á flugi fram og aftur en Icelandair þann mánuðinn. Spánverjarnir líka töluvert undir því sem Wow Air býður best.
Taflan hér að neðan sýnir þetta best. Ekki var leitað að sérstökum dagsetningum heldur eingöngu lægsta verð fram og aftur í júlí og skipti engu hvort um viku var að ræða eða lengur.
Í ljós kemur að í viðbót við að vera dýrari en andskotinn er Icelandair líka aðeins að blekkja viðskiptavini sína. Það kemur nefninlega ekki fram við leit hvaða flug þeirra er beint flug og hvað ekki. Lægsta verð sem fannst hjá flugfélaginu er því enn glataðra en ella vegna þess að á heimleiðinni er millilent í London. Með það í huga er Icelandair í raun ekki samkeppnishæft við hin tvö og merkilegt að lægsta mögulega verð á flugi með þeim skuli ekki vera beint flug.
* Leitað samtímist á öllum bókunarvefum kl. 13:38 mánudaginn 23. febrúar 2015. Evruverði Vueling breytt í krónur miðað við miðgengi dagsins. Ein taska með í öllum tilvikum og allir skattar og gjöld.







