Það er fleira merkilegt við Loch Ness en sæskrýmslið fræga sem borið hefur hróður þessa fallega vatns um héruð og lönd um heim allan. Þar fer ennfremur fram besta litla rokkhátíð heims að mati tónlistartímaritsins NME.

Ýmislegt í þessum heimi er verra en rokk og ról á bökkum hins fræga Loch Ness í Skotlandi. Mynd Sarah Finlay

Ýmislegt í þessum heimi er verra en rokk og ról á bökkum hins fræga Loch Ness í Skotlandi. Mynd Sarah Finlay

Hátíðin, Rockness, er orðin árlegur viðburður á bökkum vatnsins en þar stíga á stokk hin og þessi rokkbönd sem vakið hafa athygli en hafa þó ekki brotist til heimsfrægðar enn sem komið er.

Er um að ræða útihátíð sem ekki er aðeins óhætt að mæla með fyrir rokkaðdáendur heldur ekki síður náttúruunnendur því Loch Ness og svæðið í kring er stórglæsilegt til dvalar og gönguferða.

Rockness stendur í þrjá daga og taka verður með sér tjald eða húsvagn og vitaskuld kaupa miða en tegund miðans ákvarðar hvort fólk geti þvælst út og inn af hátíðarsvæðinu eða ekki. Helgarpassi alla þrjá dagana plús tjaldstæði kostar kringum 40 þúsund krónur. Heimasíða Rockness hér.