Engir innlendir fjölmiðlar eða fræðingar þora að segja það upphátt svo við hér tökum það að okkur: Flugfélagið Wow Air er í andaslitrum og það er búið að kalla prest að dánarbeðinu. Þetta er búið.

Komið að endapunkti fyrir Wow Air. Leiðinlegt sannarlega en flugdrekamenn þekkja þetta: það sem fer upp, kemur niður.
Allt gengur príma vel lét eigandinn og forstjórinn Skúli Mogensen hafa eftir sér í gærkvöldi í fjölmiðlum og ýmsir á samfélagsmiðlum ánægðir með kokhreisti kappans. Svona eiga frumkvöðlar að koma fram.
En hugsi fólk málið gat forstjórinn ekki sagt neitt annað og hefur ekki sagt neitt annað í þá sex-sjö mánuði sem rekstur Wow Air hefur verið í gjörgæslu. Ef kappinn viðurkenndi eitt augnablik að ekki aðeins væri flennibjart ljós við enda ganganna heldur þúsund manna standandi partí í þokkabót, færi það fljótt í fjölmiðla og þaðan í almúgann heima og erlendis. Almúga sem myndi þá snúa viðskiptum sínum annað. Slíkt myndi flýta töluvert fyrir dauða Wow Air.
Auðvitað væri heiðarlegt og alvarlega töff að henda eins og einu táknrænu hvítu handklæði í fréttamenn og segja þetta búið spil en í staðinn er leikið til þrautar og fyrir vikið er hætt við að þúsundir viðskiptavina fái kalda tusku í andlitið á næstu dögum og vikum. Flugferðum þegar verið aflýst og enn aðrar áætlunarferðir færðar til um fleiri klukkustundir. Tvær rellur kyrrsettar erlendis samkvæmt fjölmiðlum og minnst ein rella verður að vera á hlaðinu við Leifsstöð öllum stundum vegna skulda.
Skuldirnar ekkert smáræði ef fjölmiðlar reikna rétt. Fimm til tíu milljarða þarf til að keyra flugfélagið áfram næstu dagana og vikurnar og gera þarf upp rúmlega 20 milljarða skuldir til að koma flugfélaginu á núllið í bókhaldinu.
Jafnvel þó einhver mektarmaður eða menn hafi áhuga að henda fjármunum Wow Air til bjargar þá er ljóst að floti flugfélagsins í kjölfarið mun í besta falli telja fjórar til fimm vélar og beisik áætlunarflug til London, Parísar, Berlínar og Alicante það eina í boði. Það mun taka ár og aldir fyrir fjárfesta að fá væna seðla til baka við þær kringumstæður og langtímafjárfesting í flugfélögum þykir ekki móðins meðal gúrúa í fjármálaheimum.
Þrátt fyrir harða gagnrýni okkar hér á Wow Air síðustu árin er þetta mjög miður. Fargjöld munu hækka héðan út í heim og það er alltaf betra að hafa meiri samkeppni en minni samkeppni. Enda þurfti Skúla og Wow Air til að vekja gamla þreytta hunda af Þyrnirósarsvefni hjá Icelandair á sínum tíma.
Verst bara að herra Mogensen gleymdi þessu klassíska: það sem fer upp, kemur niður. Slíkt virðist alls ekkert kennt í skólum hérlendis miðað við hve margir frumherjar enda kylliflatir með rass úr buxum eftir botnlausan uppgang um áraraðir…







