Velflest lönd heims eiga sína stórkostlegu náttúrulegu staði en það eru ekki mörg sem eru svo kjaftfull af náttúrulegum dásemdum að enginn kemst yfir nema fuglinn fljúgandi. Lönd á borð við Noreg, Ísland, Azoreyjur og Nýja-Sjáland.

Stærsta borgin á Nýja-Sjálandi er hin ágæta Auckland á Norðureyju þessa fallega lands.
Engar opinberar tölur eru til í landinu um fjölda þeirra sem árlega leggja leið sína eins langt burtu og mögulegt er frá Íslandi. Þar við að tala um Eyjaálfu sem samanstendur að stærstu leyti af Ástralíu, Nýja-Sjálandi auk nokkurra smáeyja á víð og dreif um Kyrrahafið.
Engu að síður vitum við fyrir víst að tugir, ef ekki hundruðir, Íslendinga leggja þá leiðina fyrir sig af ýmsum orsökum.
Sem er hið besta mál nema ef vera skyldi að túr til Ástralíu eða Nýja-Sjálands vill oft kosta feitari skilding en við gerum okkur grein fyrir. Frá London, Frankfurt eða París eru gjarnan flugferðir í boði alla leiðina en verðmiðinn á ódýrasta farrými oft kringum 120 til 140 þúsund krónur per haus. Þá á eftir að faktora inn flugkostnað héðan til þessara borga og heim frá þessum borgum að ferð lokinni. Auðveldlega 150 til 160 þúsund krónur þegar allt er saman tekið.
Það er því óhætt að brosa út í annað þegar skyndilega er hægt að komast alla leiðina frá Evrópu til Nýja-Sjálands með millilendingu á spennandi stað fyrir svo lítið sem 77 þúsund krónur. Rétt um hundrað þúsund alls frá Íslandi og til baka.
Það er hægt komist fólk í maí eða júní frá París og flogið með Air China. Þær rellur stoppa á leiðinni í Peking/Bejing og á köflum það lengi að farþegum gefst færi á að skottast inn í borgina í nokkrar klukkustundir án þess að hafa áhyggjur.
Algjör príma díll. Eða hver annar býður þér flug aðra leið til Nýja-Sjálands niður undir 50 þúsund krónur?







