Það hljómar dálítið fráleitt og öfugsnúið við leit að ódýru flugi frá Kanada til Kúbu að eyða tíma á bókunarvef ríkisflugfélags Kína. Það gæti þó vel sparað þér ágætar upphæðir.

Hvern hefði grunað að kínverskt ríkisflugfélag byði sallafínt verð á flugi milli tveggja staða í allt annarri heimsálfu?

Nokkur fjöldi Íslendinga heldur í víking til Kúbu ár hvert og stærstur hluti þeirra kemur sér alla leiðina í gegnum Kanada þó einhverjir reyni enn að komast alla leið með bandarískum flugfélögum. Þau bandarísku fljúga vissulega ennþá til Kúbu en það mjög takmörkunum háð og tiltölulega dýrt líka. Þegar þetta er skrifað er ódýrasta fargjald JetBlue milli New York og Havana og sömu leið til baka á sardínufarrými rúmar 55 þúsund krónur. Tiltölulega dýrt miðað við lággjaldaflugfélag og aðeins sex stunda flug fram og aftur.

Ekki svo að skilja að flugferðir með þeim kanadísku sé mikið ódýrara. Það telst vel sloppið að punga út 45 þúsund krónum fyrir flug fram og aftur frá Toronto eða Montreal.

Víkur þá sögunni að rúsínunni í pylsuendanum. Air China er opinbert ríkisflugfélag Kína. Sjáið hvað við fundum þar eftir smá leit:

Flug fram og aftur í maí næstkomandi Á VIÐSKIPTAFARRÝMI fyrir 402 kanadíska dollara. Miðað við gengi dagsins gerir það heilar 36 þúsund íslenskar krónur!!!

Brilljant verð og ekki halda að þetta sé einsdæmi. Fjöldi flugferða langt fram í tímann á sama verði þessa stundina 🙂

Meira hér og góða ferð.