Ekki í fyrsta sinn og væntalega ekki í það síðasta heldur. Enn einu sinni finnum við dæmi um hversu Icelandair treður á „sínu fólki“ hér heima en gefur útlendingum rífandi afslátt.

Bóki Íslendingur ferð til Philadelphia á íslenskum vef Icelandair 7. til 14. júní næstkomandi er allra lægsta fargjald í boði á sardínufarrými á rétt tæpar 60 þúsund krónur fram og aftur eins og sést á meðfylgjandi skjáskoti.

Svo far, svo gúdd. Fargjaldið ekki beint lágt en flokkast heldur ekki sem okur fyrir rúmlega tíu stunda flugið fram og aftur og hér fylgir ein innrituð taska með í för.

Víkur þá sögunni að bandarískum vef Icelandair þar sem dálítið annað er uppi á tening. Bandaríkjamaður sem vill til Íslands þann 7. júní og heim aftur þann 14. júní og notar því sömu vél og flytur Íslendinginn út og heim aftur í dæminu hér að ofan, þarf aðeins að greiða 397 dollara fyrir flugið báðar leiðir á sardínufarrými.

Hvað kemur í ljós ef við yfirfærum 397 dollara yfir í krónur miðað við gengi dagsins? Jú, heildarkostnaður þess bandaríska í krónum talið eru rétt rúmar 43 þúsund krónur alls eins og sést líka á meðfylgjandi skjáskoti.

Sautján þúsund krónur verðmunur á nákvæmlega sömu vöru nema öfuga leið á sömu dagsetningum!!!

Sem þýðir í prósentum talið að Bandaríkjamaðurinn, sem hefur ekki lagt krónu til Icelandair hingað til, fær sömu vöru á 39% lægra verði en Íslendingurinn hvers lífeyrissjóður kom Icelandair á fæturna á ný eftir algjört hrun á sínum tíma.

Auðvitað á aldrei að mismuna fólki í einu né neinu ef það á að tíðkast er LÁGMARKSKRAFA að þeir njóti bestu kjara sem komu í veg fyrir að Icelandair heyrði sögunni til.

Eða hvað finnst þér?