Hvort ætli sé betri kostur að fljúga til Færeyja eða sigla hafi landinn hug á að upplifa eins og eina Ólavsvöku í Þórshöfn?

Hátíð í bæ en Ási ekki. Ólavsvakan í Færeyjum er hin besta skemmtan.
Hæg heimatökin að komast að því nú þegar Smyril Line hefur gefið út ferðabækling sinn fyrir árið 2016 en heilt yfir sýnist okkur hjá Fararheill verðlag að mestu standa nokkuð í stað frá fyrra ári. Smyril Line rekur Norrænu sem er eina ferjan sem siglir til Íslands og héðan er fyrsta stopp í Færeyjum. Sigling þangað tekur sautján stundir frá Seyðisfirði.
Að sama skapi er líka hægt að fljúga. Atlantic Airways flýgur reglulega milli Reykjavíkur og Þórshafnar og flugið aðra leið tæplega einn og hálfan tíma.
Miðað við að einn einstaklingur án ökutækis panti ódýrustu koju í innriklefa með Norrænu upp úr miðjum júlí kostar siglingin fram og aftur þann einstakling 32.000 krónur. Viðkomandi þarf að deila káetu með öðrum, hann þarf að koma sér til Seyðisfjarðar og hann er líka bundinn af því að dvelja í fimm daga eða tíu ætli hann að ná ferjunni til baka.
Sá sem ætlar með flugi greiðir fyrir það rúmar 39.000 krónur fram og aftur miðað við bókunarstöðu dagana fyrir Ólavsvöku hjá Atlantic Airways. Sá er mættur í partíið tveimur tímum síðar og hefur nokkuð frjálst val um hversu lengi hann dvelur því flogið er á milli þrisvar í viku.
Í okkar huga er þetta engin samkeppni. Ferjan er einfaldlega of dýr kostur og tímafrekur miðað við flugið. Það breytist þó ört þegar nær dregur því flugfargjöld hækka hjá Atlantic Airways eins og öðrum þegar nær dregur. Þá gæti sautján tíma siglingin farið að heilla einhvern.
Hvenær er svo hin fræga vaka Ólavs eða Ólafsøku eins og heimamenn kalla fyrirbærið? Hún hefst þann 28. júlí og stendur í tvo daga árið 2017.







