Af og til gegnum tíðina hafa birst auglýsingar frá Leifsstöð þar sem innlendingum er bent á að verðlag í verslunum í þeirri flugstöð sé „allt að því 50% lægra“ en annars staðar í landinu og því óvitlaust að eyða eins og enginn sé morgundagurinn. En hvers vegna fá útlendingar aðeins 20% afslátt?

Lágmarks afsláttur af vörum í Leifsstöð er 19,35 prósent. Eitthvað er nú bogið við það. Skjáskot

Skjáskotið hér til hliðar er úr auglýsingu frá Leifsstöð sem beint er sérstaklega að útlendingum en þeir halda áfram að flykkjast til landsins þrátt fyrir að hér fáist varla dýna á temmilegu gólfi undir 30 þúsund krónum per nótt.

Hér um að ræða svokallaðar „hönnunarvörur“ sem verða sjálfkrafa dýrari en annað jafnvel þó hver einasta vara sem framleidd er veröldinni sé tæknilega „hönnunarvara.“

Nóg um það. Vandamálið snýr að tölunni sem Leifsstöð gefur upp í auglýsingunni. „Að lágmarki 19.35% lægra verð en annars staðar,“ svona gróflega þýtt.

Nú er enginn úr ritstjórn með reynslu eða gráður frá Ríkisskattstjóra en er ekki eitthvað bogið við að vörur sem alla jafna bera 24% virðisaukaskatt sem ekki er greiddur af vörum í Leifsstöð, skuli aðeins vera rúmlega 19 prósent ódýrari en annars staðar?

Með öðrum orðum: vörur sem bera 24 prósenta skatt utan Leifsstöðvar ættu að minnsta kosti að vera 24% ódýrari í Leifsstöð ekki satt? Það er reyndar ekki svo þó margir haldi svo vera. Skattur af vöru í 24 prósenta skattþrepi er akkúrat 19.35 prósent þegar allt kemur til alls.

Reyndar ættu vörur í Leifsstöð að vera enn ódýrari en það vegna þess að ekki aðeins er ekki greiddur virðisaukaskattur af vörusölu í Leifsstöð né heldur aðflutningsgjöld eða tollar aðrir.

Það vita allir sem pantað hafa Andrésblað frá Danmörku að aðflutningsgjöld geta kostað skildinginn jafnvel þó mest af tollum hafi fallið niður um síðustu áramót. Með það í huga ættu allar vörur í Leifsstöð að vera að lágmarki 20% til 35% ódýrari en vörur annars staðar í landinu þegar allt er til tekið.

Punkturinn því sá að það er alls enginn sérstakur afsláttur af vörum í Leifsstöð umfram verslanir annars staðar. Það er aðeins ríkisafsláttur gegnum virðisaukann á vörum sem eru auglýstar 19.35 prósentum ódýrari . Afsláttur sem þjóðfélagið tapar á því sá virðisauki skilar sér ekki í kassann okkur til heilla.