Ferðaþyrstir einstaklingar þarna úti vita sem er að sumarið 2017 verður það fyrsta sem áhugasömum gefst kostur á að fljúga beint til Prag í Tékklandi frá Keflavíkinni. Þar um að ræða tékkneska flugfélagið Czech Airlines sem þykir gott til brúks en miðað við bókunarstöðu á vef flugfélagsins er ekki seinna vænna að rífa upp kortið og bóka.

Það er fljótt að fyllast í flug Czech Airlines til og frá Íslandi í sumar. Mynd CZA

Enga vísindamenn þarf til að vita að Ísland er jafn „heitt“ meðal Tékka og annarra þjóða kvikinda. Sama er hvar stigið er niður þessi dægrin; allir eru á leiðinni til Íslands.

Við hér njótum góðs af þeim áhuga enda þýðir það stóraukna samkeppni í flugi hingað og erlendum flugforstjórum leiðist ekkert að geta fyllt vélar sínar til baka líka með Íslendingum.

Samkvæmt lauslegri úttekt Fararheill hjá Czech Airlines leikur enginn vafi á að Tékkarnir eru spenntir fyrir landi og þjóð. Það má ávallt ráða af háum fargjöldum hjá flugfélögum sem eru við það að geta kallast lággjaldaflugfélög svona heilt yfir.

Eins og sjá má á meðfylgjandi töflu er ekki alveg gefið að skoppast í helgarferð til Prag í sumar en þó listum við einungis allra lægsta fargjald, með og án tösku, sem í boði er í júní, júlí og ágúst. Þau fargjöld fá og langt á milli og meðalverð á flugi til Prag er að meðaltali tvöfalt hærra en hér kemur fram.

Því ekki seinna vænna langi fólk til tékknesku borgarinnar að hafa hraðar hendur og bóka eigi síðar en í gær 😉

* Úttekt gerð kl. 21:30 þann 15. mars 2017. Fargjald aðra leið út með og án farangurs.