Þó enn sé febrúarmánuðir rétt rúmlega hálfnaður og hugur margra við páskafrí eru fjölmargir þegar búnir að tryggja sér sumarleyfisferðirnar líka. Það má merkja á bókunarvélum ferðaskrifstofanna.

Strendur Rhodos hafa heillað um ár og aldir og gera líklega um ókomna tíð. Mynd Alex Saprykin
Að mestu leyti er um góðkunningja að ræða í boði þetta sumarið. Alicante, Calpe, Mallorca og Almeria eru vinsælir áfangastaðir á Spáni og fátt út á þá að setja ef helstu kröfurnar eru sandur og sól.
Velflestar ferðaskrifstofurnar bjóða mismunandi pakka og hótel en gróflega heilt yfir má segja að tveggja vikna sólarferð til Spánar rokki í verði frá 340 þúsund krónum lægst á lakari hótelum með engu fæði eða morgunverði og upp í sex til sjö hundruð þúsund fyrir fimm stjörnu pakka með öllu inniföldu. Þar miðað við tvo einstaklinga.
Sé aðeins litið gróflega á pakkaferðir með öllu inniföldu er hæpið að komast af með minni kostnað í tvær vikur en 420 þúsund og upp úr samtals á hjón eða par. Hálf milljón króna er þó nær lagi ef hótelið á að vera í almennilegum klassa.
Með tilliti til ofangreinds gæti því einhver hrópað húrra yfir tveggja vikna dvöl á grísku eynni Rhodos með öllu inniföldu en reyndar á þriggja stjörnu hóteli fyrir rétt rúmar þrjú hundruð þúsund krónur á parið.
Það er fantagott verð á góðum sumarleyfispakka á háannatíma í júlí í þokkabót. Þann pakka getur þú gripið með því að blanda saman flugi héðan til Berlínar og þaðan hoppað í ferð sem ferðaskrifstofa Airberlin er að bjóða þessa dagana. Það er flug til og frá Rhodos og tvær vikur á hóteli sem fær ágætar einkunnir og allt innifalið plús ferðir til og frá flugvelli fyrir alls 124 þúsund krónur á haus miðað við tvo eða alls 248 þúsund. Ofan á það hengjum við 60 þúsund krónurnar sem til þarf til að fljúga héðan til Berlínar og heim aftur að ferð lokinni.
Útkoman úr því eru rétt rúmar 300 þúsund krónur alls eða gróflega hundrað þúsund krónum lægra verð en gera má ráð fyrir að sambærileg Spánardvöl héðan geti kostað.
Allt um þetta hér ef áhugi er fyrir hendi og hafið í huga að ef hægt er að ferðast fyrir utan júlí eða ágúst má lækka ferðaskostnaðinn töluvert meira en þetta.







