Bloggarinn og verkfræðingurinn Tómas Hafliðason kann Icelandair litlar þakkir fyrir takmarkaðar upplýsingar vegna mikilla tafa sem hann varð fyrir á leið sinni til Kaupmannahafnar. Tvær vélar Icelandair töfðust verulega í dag.
Eins og Tómas bendir réttilega á eru litlar sem engar upplýsingar á vef flugfélagsins vegna málsins aðrar en að tafir hafi orðið og seinkanir verði í kjölfarið.
Veltir verkfræðingurinn fyrir sér á þessum tímum tækni og framfara hvers vegna flugfélög geti ekki ósköp einfaldlega sagt þeim farþegum er fyrir töfum verða hvað vandamálið sé nákvæmlega. Meiri upplýsingar geri biðina auðveldari.
Ritstjórn Fararheill hefur fjallað um þetta áður enda takmarkaðar upplýsingar til farþega ekki einskorðaðar við Icelandair. Vaknar reyndar strax grunur um eitthvað meiriháttar fyrst flugfélag vill ekki gefa upp ástæður tafa eða seinkana.
Eins og Tómas kemst að orði á bloggi sínu:
Það er frábært að flugleiðir hafa reglulega sent mér SMS og sagt mér hver töfin er. Mikil framför frá því sem áður var, en af hverju segja þeir mér bara ekki hvað er að? Ég finn það heldur ekki á síðunni þeirra, þar stendur sama og ég fékk í SMS-inu, tækileg villa. En hvað þýðir það? Datt af hjól? Er móða inn á einum glugganum? Var einhver veikur? Af hverju segja þessi flugfélög manni bara ekki hvað það er sem er að?
Fararheill tekur undir þetta fullum hálsi. Farþegar eru engin fífl. Kristaltært er að ef hjól dettur af eða eitthvað meiriháttar bilun verður á vél verður töfin feit og löng og þá geta farþegar kannski nýtt tímann með öðrum hætti en klessa rassi við óþægilegan flugstöðvarsófa.
Aðeins ein ástæða er fyrir að flugfélögin veita ekki þessar upplýsingar; bilunin er eitthvað sem flugfélagið skammast sín fyrir eða það alvarleg að slæmt væri að slíkt kæmist í dagsljósið.







