Eigum við að ræða eitthvað þriðja desember næstkomandi? Hjartað farið að hamast í brjósti yfir öllu því sem þú átt eftir að gera áður en stóri dagurinn þegar Jesú litli fæddist í Nasaret rennur upp. Skítakuldi úti, bíllinn fer ekki í gang í frostinu og enn ekki komið nýtt kortatímabil…..
Væri ekki aðeins vinalegra að súpa bara hvítvín og kósíast með makanum á einu af óteljandi þilförum skemmtiferðaskipsins Splendida á Miðjarðarhafinu í staðinn fyrir allt íslenska ruglið og það fyrir smápeninga?
Ferðaskrifstofan Cruise Nation býður í desember sjö daga ferðir frá Barcelóna á Spáni til Frakklands, Ítalíu og Túnis áður en haldið er aftur til Spánar og flugið tekið til London. Eðalferð fyrir þreytta Frónbúa og kjörin leið til að hlaða rafhlöðurnar áður en jólaruglið tekur við í enn eitt skiptið.
Best af öllu er prísinn. Sé bókað fljótlega fæst slík ferð í sæmilegri káetu fyrir aðeins 77 þúsund íslenskar krónur miðað við miðgengi dagsins. Það gera ellefu þúsund krónur á dag og þykir bara fyndið verð á glæsilegu skemmtiferðaskipi og prísinn felur líka í sér flug til og frá London en þó ekki til og frá Íslandi.
Reyndar er ekki mikið innifalið í ferðinni sjálfri en eyða má duglega um borð áður en menn komast nálægt þeim upphæðum sem íslensku ferðaskrifstofurnar krefjast fyrir svipaðar ferðir.







