Sért þú einn eða ein af þeim sem halda til London þann 26.júlí næstkomandi er ráð að taka með sér þolinmæði og nóg af henni. Meiri líkur en minni eru nú taldar á að boðað verkfall landamæravarða þann dag verði að veruleika. Þá verður lítið gaman fyrir flugfarþega til borgarinnar.
Þetta er dagurinn áður en Ólympíuleikarnir í borginni hefjast og þó hingað til hafi aukið starfslið á flugvöllum í og við London mætavel tekist á við aukinn fjölda ferðafólks er hætt við miklu öngþveiti gangi boðað verkfall eftir. Það mun ná til starfsmanna á öllum helstu flugvöllunum og raunar mun víðar.
Bresk stjórnvöld eru æf yfir þessari hótun starfsfólksins sem telur sig fá of lítið fyrir of mikla vinnu. Hótun um verkfall þennan dag er engin tilviljun enda koma tugþúsundir gesta á leikana og til landsins með flugi þann dag.
Sjá má á vef Iceland Express að eina flug þess flugfélags þann 26. júlí er fullbókað en laus sæti eru enn í boði hjá Icelandair til Heathrow þennan dag. Wow Air flýgur ekki til London þennan dag.
Ekki er alveg útséð um hvort af verkfallinu verður. Stjórnvöld íhuga nú að segja upp öllum þeim starfsmönnum sem kusu að fara í verkfall þennan dag en það er engan veginn til þess fallið að bæta stöðuna ef sú verður raunin. Þvert á móti gætu þá fleiri kollegar farið í samúðarverkfall.
Fararheill fylgist með og lætur vita hvað verður áður en stóri dagurinn rennur upp.







