Tíðindi

Ekkert hæft í fréttum um nýja flugstöð í Keflavík

  20/07/2012No Comments

Ekkert er hæft í þeim fréttum að í skoðun sé að byggja alveg nýja flugstöð á Keflavíkurflugvelli. Eingöngu er verið að vinna með hugmyndir um stækkun Leifsstöðvar.

Isavia segir rangt að alvarlega sé verið að skoða hugmyndir um byggingu nýrrar flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli

Þetta fær Fararheill staðfest hjá Isavia en samkvæmt kvöldfréttum RÚV 19. júlí skoða forráðamenn Leifsstöðvar það alvarlega að byggja alveg nýja flugstöð enda ráði Leifsstöð ekki við þann fjölda sem áætlanir gera ráð fyrir að fari um stöðina næstu árin.

Samkvæmt fréttinni útilokar Hlynur Sigurðsson, framkvæmdastjóri flugstöðvarinnar, ekki að byggð verði alveg ný flugstöð enda leiki vafi á hvort Leifsstöð henti til frekari stækkunar.

Þetta er þó ekki í fyrsta skipti sem fréttir berast af því að Isavia skoði í alvöru að byggja glænýja flugstöð. Stöð 2 birti frétt um slíkt í febrúar síðastliðnum.