Ekki virðist hafa verið fit fyrir að halda úti sérstökum uppboðsvef með áherslu á ferðir og ferðalög. Tilboðsvefurinn Gæsin.is sem hafði það að markmiði hefur nú runnið inn í móðurvefinn Hópkaup.

Ekki virðist hafa verið grundvöllur fyrir sérstökum ferðatilboðsvef því Gæsin.is hefur hætt starfsemi
Gæsin.is hóf starfsemi snemma í vor en honum var haldið úti af hálfu Hópkaup.is sem er þekktur tilboðsvefur. Áherslan var á ferðatengdar vörur, þjónustu og vörur og buðust á Gæsinni töluverðir afslættir af flugferðum, ferðapökkum ásamt öðrum hlutum.
Nú hefur Gæsin flogið á vit forfeðrana og munu eftirleiðis ferðatilboð, sem önnur tilboð, aðeins bjóðast á vef Hópkaupa.






