Tíðindi

Ein ferðaskrifstofa á hverja sjö þúsund Íslendinga

  19/07/2012No Comments

Ekki er aðeins gósentíð hjá þeim ferðaþjónustuaðilum sem taka á móti erlendum ferðamönnum hingað til lands. Fjöldi ferðaskrifstofa sem bjóða ferðir fyrir landann út í heim virðast einnig gera það gott ólíkt því sem reyndin er erlendis.

Á Íslandi er starfrækt ein ferðaskrifstofa á hverja 6.600 Íslendinga yfir fimmtán ára aldri

Samkvæmt lista Fararheill.is yfir íslenskar ferðaskrifstofur, þ.e. þá aðila sem bjóða ferðir héðan út í heim, eru alls um 37 fyrirtæki sem þá þjónustu veita. Verið getur að sá listi sé ekki hundrað prósent tæmandi en hann er í öllu falli nærri. Það þýðir að það er ein ferðaskrifstofa á hverja 8.600 Íslendinga.

En vitaskuld eru börn og ungmenni ekki mikið að versla ferðir erlendis á eigin spýtur. Ef við leikum okkur aðeins meira með tölurnar og teljum aðeins þá 253 þúsund einstaklinga sem eru yfir fimmtán ára aldri þá er ein ferðaskrifstofa á hverja 6.600 Íslendinga.

Erlendis deyja hefðbundnar ferðaskrifstofur eins og flugur fyrst og fremst vegna samkeppninnar við netferðaskrifstofur en einnig að stórum hluta vegna þess að sífellt fleiri skipuleggja nú orðið ferðir sínar alfarið sjálfir án sérstakrar aðstoðar ferðaskrifstofa.

Margir þeir sem búið hafa erlendis um skeið hafa oft á orði að Íslendingar séu almennt sirka tíu árum á eftir stærri þjóðum með flesta skapaða hluti. Það stemmir við gríðarlegt framboð af ferðaskrifstofum hér og þeim hefur fjölgað fremur en hitt síðustu árin. Það mun breytast.

Merkilegast er kannski, að mati ritstjórnar, að þrátt fyrir þennan mikla fjölda og harða samkeppni, er úrval og fjölbreytni ferða í boði í lágmarki.