Ríkisstjórn Íslands með niðurgang á heimsmælikvarða. Eða hvernig annars er hægt að útskýra að skattfé almennings er notað til að niðurgreiða fjölda starfa hjá fyrirtækjum raðsvindlarans Pálma Haraldssonar þrátt fyrir að móðurfyrirtækið sé staðsett í skattaskjólinu Lúxemborg og mestallur hagnaður síðustu ára hafi farið lóðbeint og skattlítið í vasa eigandans?

Smekkmaður á fatnað og gleraugu en svindlari samt. Skjáskot RÚV
Athyglisvert svo ekki sé meira sagt að skoða lista þeirra fyrirtækja sem leituðu á náðir ríkisins þegar hlutabótaleiðin var kynnt fyrir tveimur mánuðum. Þar nánast öll fyrirtæki í ferðaþjónustu sem öll hafa malað gull síðustu sjö ár eða svo en eiga ekki bót fyrir eina boru þegar á brattann er að sækja.
Mörg ömurleg dæmi en Ferðaskrifstofa Íslands vekur sérstaka athygli okkar hér. Ferðaskrifstofa Íslands á og rekur Sumarferðir, Úrval Útsýn, Plúsferðir auk annars og er að fullu í eigu hins megavafasama Pálma Haraldssonar. Sama Pálma og svindlaði um áraraðir með ávexti og grænmeti og átti þátt í ýmsum vafasömum gjörningum í aðdraganda Hrunsins 2008. Mestallur hagnaður síðustu ára, hundruðir milljóna króna, farið beint í vasa Pálma og þar sem móðurfélag Ferðaskrifstofu Íslands er skráð í Lúxemborg hefur lítið sem ekkert fé skilað sér til hins íslenska ríkis.
Hvers vegna Ferðaskrifstofa Íslands fær íslenska ríkisaðstoð sísona þrátt fyrir það er hulið öllum sem eiga heilasellu í hausnum. Öll aðstoð ætti auðvitað að koma frá stjórnvöldum í Lúx.







