Góðar fréttir fyrir okkur ferðaþyrst. Stjórnvöld í Portúgal ætla að opna allt sitt klabb þann 15. júní næstkomandi fyrir öllum utanaðkomandi og ekkert sóttkvíarkjaftæði.

Covid hefur ekki farið sérstaklega illa með Portúgali og þeir opna því land sitt fyrir ferðafólki vel á undan flestum öðrum.
Grikkir opnuðu sig í dag, Ítalir og Spánverjar gæla við opnun í byrjun júlí og Portúgal opnar allar gáttir um miðjan júní.
Þetta var staðfest af þarlendum stjórnvöldum og aukinheldur að erlendir ferðamenn þurfi EKKI að fara í neina sóttkví við komu hvað sem tautar og raular.
Það súpergott mál í alla staði enda einn allra flottasti og ódýrasti áfangastaður Evrópu. Gallinn sá að flug til landsins og frá er takmarkað en ríkisflugfélagið TAP hyggst hefja reglulega áætlunarferðir þann 1. júlí næstkomandi. Þannig verður líklega hægt að skottast til Portúgal héðan úr ballarhafi en það kostar millilendingu annars staðar í Evrópu. Það lítill kostnaður fyrir ódýrt sólríkt frí ef þú spyrð okkur 🙂







