Sú saga fór á flug í allmörgum erlendum fjölmiðlum í gær að japönsk stjórnvöld ætluðu sér að endugreiða helming alls kostnaðar ferðamanna í landinu næstu mánuðina. Fréttin vakti eðlilega mikinn áhuga en það sem virðist of gott til að vera satt…

Höfuðborg Japan er ekki allra en helmings afsláttur heillaði marga samt.

Ekki lítið gott tilboð. Helmingur alls kostnaðar ferðamanna endurgreiddur umorðalaust við brottför í Japan. Landið er fokdýrt heimsóknar og því kom ekki á óvart að samkvæmt tölfræði Google tók leitarsetningin „ferðalög í Japan” feitan kipp upp á við umsvifalaust.

Reyndin er þó önnur. Japönsk stjórnvöld eru raunverulega að bjóða endurgreiðslu helmings kostnaðar við ferðalög í landinu EN ÞÓ EINUNGIS TIL JAPANA SJÁLFRA. Þeir fá feita endurgreiðslu ef þeir ferðast um eigið land næstu misserin. Sem er töluvert merkilegri díll en þessi fimm þúsund kall sem íslensk stjórnvöld bjóða sínum landsmönnum fyrir flakk innanlands í sumar.