Sýklar og bakteríur á óskalistanum? Þá eru flugferðir hvers kyns príma staður til að næla í slíkan vibba. Þú getur meira að segja fengið hættuna beint í æð við öryggisleit í Leifsstöð.

Öryggisleitin gæti sent þig í rúmið í fríinu. Mynd A.Curry

Athyglisverð grein í NYT þennan daginn. Í ljós kemur að flugfarþegar eiga ekki aðeins á hættu að sýkjast af alls kyns vibba í farþegavélum heldur og líka við öryggisleit á flestum flugstöðvum.

Hvernig þá?

Jú, í ljós kemur samkvæmt finnskri rannsókn að plastbakkar þeir sem við öll þurfum að leggja handfarangur okkur í við öryggisleit erlendis sem hérlendis eru smitberar dauðans.

Á Vantaa flugvelli í Helsinki reyndust helmingur plastbakkanna troðnir af bakteríum og vibba og það langt yfir fjölda slíkra örvera sem finna má á almenningsklósettum. Örverur sem sekar eru um veikindi á borð við flensu og kvef og á köflum þaðan af verra. Það þrátt fyrir að yfirmenn á flugvellinum sögðu allt klabbið vera þvegið hægri vinstri hvern einasta dag.

Einmitt það 😉

Fullyrða má miðað við krakkana sem sjá að mestu um öryggisleit í Leifsstöð að sama vandamál er þar á ferð. Enginn nennir að sótthreinsa plastbakka þar fremur en annars staðar. Og þar sem margir hirða lítt um handþvott og almennt hreinlæti má slá föstu að öryggisleit á flugvöllum getur sannarlega sett strik í fríið þitt.