Húha! Þegar maður heldur að hlutirnir verði ekki verri…

Drykkjarvatn nánast hvarvetna í Bandaríkjunum er svo kjaftfullt af þráefnum að engu lagi er líkt.
Þrávirk eiturefni finnast í nánast öllu drykkjarvatni hvarvetna í Bandaríkjunum samkvæmt nýlegri úttekt og það í mun ríkari mæli en áður var talið. Svo ríkum mæli að ekki er mælt með vatnsdrykkju nema á örfáum stöðum í landinu.
Reuters gerir málinu ágæt skil og vitnar í nýja skýrslu umhverfissamtakanna Environmental Working Group, sem eru regnhlífasamtök fjölda hópa sem starfa á vísindalegum grunni að því að bæta líf og líðan almennings.
Í skýrslunni kemur fram að drykkjarvatn er kjaftfullt af þrávirkum og oft eitruðum efnum víðast hvar í landinu. Aðeins í einu tilfelli af 44 stöðum alls um land allt reyndist magn þrávirkra eiturefna vera við þau mörk sem þolanleg séu mönnum og músum. Á 43 stöðum var magn efnanna langt, langt umfram eðlileg og heilsusamleg mörk.
Hvaða þrávirku efni eru þetta?
Jú, þetta eru yfirleitt manngerð flúorefni sem komast út í náttúruna frá efnaverksmiðjum hvers kyns. Efni þessi eru talin líklegur orsakavaldur ýmissa krabbameina, lifrarsjúkdóma, vannærðra fóstra og margvíslegra annarra veikinda. Ekkert hundrað prósent sannað og verður kannski aldrei en allur er varinn góður.
Aldrei drekka bandarískt vatn og það gildir líka um átappað vatn. Það vatnið er líka mengað.







