Þó stöku staðir hér og þar hafi takmarkað opnað landamæri sín fyrir ferðalöngum eru engir á pari við Grikki. Þar hófst ferðamannatímabilið í dag.

Allt galopið orðið í Grikklandi. Mynd Agnee

Frá og með mánudeginum 25. maí geta erlendir ferðamenn heimsótt landið, en þó einungis gegnum Aþenu eins og stendur. Þaðan er hins vegar hægt að heimsækja hinar dásamlegu grísku eyjur og strendur vandræðalaust og sömuleiðis eru barir og veitingastaðir nú opnir öllum.

Grikkjum hefur tekist framar vonum að takast á við Covid faraldurinn og þarlendir telja litla þörf á sérstökum takmörkunum eins og sóttkví. Það er hins vegar krafa að bera andlitsgrímu öllum stundum.

Þessu tengt er óhætt að hafa í huga að gisting í Grikklandi er nú 20-30 prósent ódýrari en á sama tíma í fyrra. Komist fólk á annað borð til landsins er hægt að njóta vel og lengi jafnvel þó krónan okkar hafi fallið duglega síðustu misserin.