Athugull lesandi Fararheill hefur bent ritstjórn á að svo virðist sem enn sé ferðaviðvörun til Egyptalands í gildi hjá utanríkisráðuneyti Íslands. Er þó vika síðan flestallar nágrannaþjóðir afléttu sams konar viðvörun og ferðamenn streyma nú til landsins aftur þó í minna mæli sé.
Merkilegt má líka telja að utanríkisráðuneytið íslenska virðist ekki halda að íslenskir þegnar séu mikið á faraldsfæti því hvergi á vef ráðuneytisins er að finna neinar viðvaranir vegna ástandsins sem verið hefur í Túnis, Alsír, Jórdaníu, Yemen, Líbíu eða Barein.
Þá berast og fréttir af því í dag að mótmæli séu hafin í Marokkó.






