Tíðindi

Græðgisvæðing Úrval Útsýn

  21/02/2011nóvember 22nd, 2014No Comments

Öll vitleysan er einfaldlega ekki eins og á stundum keyrir hún fram úr hófi. Það á við um tilboð ferðaskrifstofunnar Úrval Útsýn til nýs áfangastaðar nálægt Almería á Spáni í sumar en þar getur þriggja manna fjölskyldan sparað sér 127.519 krónur með örlitlum krókaleiðum.

Ferðaskrifstofan auglýsir nú gistingu á ágætu hóteli, Cabogata Plaza Suites, skammt frá borginni Almería í sumar og er auglýst verð á heimasíðunni miðað við tvo fullorðna og eitt barn 481.370 krónur. Er innifalið beint flug til Almería, gisting og morgunverður í viku 24.júní til 1.júlí 2011.

Ferðaskrifstofan býður þó einnig upp á að kaupa aðeins flug og flug fyrir tvo fullorðna og eitt barn kostar samkvæmt verðskrá Úrval Útsýn 258.350 samtals fyrir alla þrjá.

Þó 86 þúsund króna flugfargjald til Spánar á mann geti vart talist sérstaklega hagstætt vænkast hagur verulega með því að fara á heimasíðu Cabogata Plaza Suites og bóka sjálfur herbergi fyrir tvo fullorðna og eitt barn 24. júní til 1. júlí. Vikan sú kostar 95.501 krónu miðað við gengi dags 21. febrúar.

Þannig kostar sama ferð og Úrval Útsýn auglýsir á 481.370 krónur nú aðeins 353.851 krónu. Það er sparnaður upp á 127.520 krónur.

Til umhugsunar: Þó ekki sé ýkja spennandi að þvælast milli flugvalla með börn er hægt að verða sér úti um enn ódýrari pakka með flugi til London og þaðan til Almeríu, Alicante, Malaga eða Granada. Það er þó nokkuð meira fyrirtæki.