Frá og með miðnætti geta ferðasjúkir keypt tilboðsferðir til Brussel í Belgíu eða Boston í Bandaríkjunum en þá tekur gildi sólarhringstilboð Icelandair til þessara áfangastaða.
Þannig fæst fargjald fram og til baka til Boston á 46.690 krónur og ferðatíminn er 26. apríl til 19. júní 2011. Þannig hægt að fagna þjóðhátíðardeginum í Boston Common garðinum fræga.
Töluvert ódýrara er til Brussel en punga þarf út 30.120 krónum báðar leiðir. Ferðatímabilið 2. júní til 8. júlí 2011. Óvitlaust að kaupa hér aðra leið standi hugur til að komast ódýrt eitthvað annað en frá Brussel fljúga allnokkur lágfargjaldaflugfélög á borð við Wizz Air, easyJet, Flybe, Jet4you og fleiri.
Heimasíða Icelandair hér.








