Árið 2011 er ekki rétti tíminn til að eyða löngum stundum í Moskvuborg í Rússlandi nema gjafmildur Jóakim aðalönd sé í fjölskyldunni. Meðalverð á hótelherbergjum í þeirri borg á síðasta ári kostaði hvorki meira né minna en 48 þúsund krónur.
Þrátt fyrir þetta himinháa verð fyrir meðalgistingu á meðalhóteli lækkaði almennt verðið í rússnesku höfuðborginni frá árinu áður.
Sama átti sér stað í Abu Dhabi, sem árið 2009, var önnur dýrasta borg heims að gista í samkvæmt úttekt ráðgjafafyrirtækisins Hogg Robinson. Þar féllu verðin svo skarpt að Abu Dhabi er nú „aðeins“ 19 dýrast borgin að dvelja í.
Listinn yfir dýrustu hótel heims að meðaltali á síðasta ári er svohljóðandi:
- Moskva – Meðalverð á nótt 48.635 krónur
- New York – Meðalverð á nótt 39.764 krónur
- Genf – Meðalverð á nótt 38.250 krónur
- París – Meðalverð á nótt 37.685 krónur
- Zurich – Meðalverð á nótt 37.305 krónur






