Þreytt á kulda og trekki á klakanum og viljið út í sól hið snarasta. Þá er vitlegt að skoða hvað Primera Air er að bjóða næstu vikurnar. Undantekningarlítið að bjóða lægri verð en Wow Air til Alicante.

Alicante í hvelli? Þá er vitlegra að bóka hjá Primera Air en Wow Air. Samsett mynd
Þér fyrirgefst ef þú ert með upp í kok af verulega þreyttu veðri á klakanum undanfarna mánuði. Nístandi hitastig og kaldur vindur aftur og aftur og aftur og aftur með sirka þremur undantekningum frá því í september 2017.
Ylja í kropp er nauðsyn hverri sál og þar fljótlegast að skutlast til Alicante í grænum hvelli.
Undanfarin ár hefur Wow Air oftar en ekki boðið langbest á þær sólríku slóðirnar en það breyst mjög síðustu misserin. Ekki aðeins er norska lággjaldaflugfélagið Norwegian að henda okkur til og frá fyrir klink heldur og er uppi typpið á Primera Air þessi dægrin.
Á vef Primera má, þegar þetta er skrifað, finna flug aðra leið til Alicante á nokkrum dagsetningum næstu vikurnar niður í 9.999 krónur með 10 kílóa handfarangur meðferðis.
Það tæplega fjögur þúsund krónum lægra en Wow Air býður lægst næstu vikurnar samkvæmt úttekt og flugtímar Primera Air oftast nær mun ljúfari en flugtímar Wow Air á sömu slóðir.







