Ritstjórn Fararheill hefur síðustu misserin öskrað sig hása yfir fábreytni ferðaskrifstofanna og meðal annars gert mikið úr að nánast alls engar ferðir hafa verið í boði til Portúgal fyrir Íslendinga um árabil.
Hvort þau öskur hafa haft eitthvað að segja eður ei skal ósagt látið en Portúgal er allavega loksins komið aftur á Evrópukortið hjá Vita ferðum.
Fyrir utan stöku „sérferðir“ ferðaskrifstofanna íslensku til eyjunnar Madeira undanfarin ár var það aðeins síðasta sumar sem okkur buðust ferðir á nýjan leik til Portúgal eftir margra ára hlé og þá til Algarve. Þar átti ferðaskrifstofan Vita í hlut og nú bætir sú ferðaskrifstofa um betur og býður einar fjórar golfferðir til Portúgal í vor og það í beinu flugi.
Ok! Auðvitað vildum við sjá reglulegar ferðir til Portúgal fyrir aðra en golfunnendur. Stórkostlega hluti er hægt að upplifa í og við Lissabon og ekki er amalegt að þvælast um vínhéruð Porto til norðurs heldur.
En þó ferðir Vita séu næsta allar á vinsæla fjöldatúrismastaði á Algarve þá er að minnsta kosti stutt í fjölbreytni. Fararheill mælir sérstaklega með bæjum til vesturs sem ekki eru alveg jafn súrir af slíkum túrisma og staðir til austurs. Lagos er fjörlegur bær og enginn ætti að sleppa rúnti til Sagres og taka því rólega á leiðinni meðfram ströndinni.
Í öllu falli er þetta vonandi fyrsta barnaskrefið hjá Vita og innan tíðar geti Íslendingar kynnst annarri hlið á Portúgal en ströndum Algarve.
Heimasíða Vita hér.
View Golfferðir til Portúgal með Vita in a larger map







