Pistlar

Verði ykkur að góðu

  14/01/2013No Comments

Við hjá Fararheill höfum um nokkra hríð reglulega bent lesendum á ýmis konar ferðatilboð erlendis sem skjóta flest það sem er í boði hérlendis á bólakaf þegar tekið er tillit til verðlagningar. Fyrir það fáum við auðvitað ekki neina plúsa hjá ferðaskrifstofum hér á landi en það er í góðu því við vinnum ekki fyrir þær heldur ykkur.

Fátt er jafn heilsusamlegt, fræðandi og yndislegt en að ferðast en það getur kostað skildinginn og sérstaklega hér heima.

En hingað til höfum við í raun ekki haft vitneskju um hversu margir, eða bara einhverjir, hafi nýtt sér einhver þau tilboð sem við teljum góð og höfum bent á. Fyrr en nú.

Þessi sigling hér sem við töldum kjarakaup á rúmlega sjötíu þúsund krónur og mæltum með varð fyrir valinu hjá fimm hjónum og pörum sem hafa skrifað okkur og þakkað fyrir. Allt tókst vel og almenn ánægja í hópnum.

Sömuleiðis vitum við um fjóra einstaklinga sem eru á ferðinni þegar þetta er skrifað í ferðum sem Fararheill benti á að væru á sérdeilis góðum kjörum.

Þetta er frábært að heyra og gott að margir setja ekki fyrir sig að millilenda einhvers staðar ef það sparar tugi og jafnvel hundruð þúsunda króna annars. Enda förum við alls ekki ofan af því að hér á landi er verðlag á utanlandsferðum hvers kyns að mörgu leyti út í Hróa hött og allt hans fólk og höfum ítrekað sýnt fram á það.

Takk og endilega látið okkur vita ef upplýsingar okkar nýtast til þvælings erlendis án þess borga fyrir með raðgreiðslum til tólf mánaða.