Í Póllandi er hægt að lifa eins og kóngur vegna þess hve allt er ódýrt. Það segir Baldvin Vernharðsson, sem leggur stund á nám þar í landi og virðist ekki leiðast lífið ef marka má nýtt kynningarmyndband.

Vefurinn Study in Poland þar sem Pólland sem námsland er kynnt til sögunnar birti nýlega viðtal við íslenskan námsmann sem segir allt gott að frétta og ber landi og þjóð góða sögu eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi.

Þó brosa megi út í annað yfir myndbandinu er það staðreynd að Pólland er almennt mun ódýrara land en mörg önnur í Evrópu og þar bæði hægt að gera vel við sig í mat og drykk en ekki síður fata fjölskylduna upp fyrir brot af því sem greiða þarf í dýrari löndum.

Það getur Fararheill staðfest. Kíktu bara á bókunarvél okkar hér að neðan en þar má finna fimm stjörnu gistingu víða allt niður í fimm þúsund krónur per nótt.