Marga þyrstir í ferð til Balí á Indónesíu en oftar en ekki er ekki alveg heiglum hent að komast þangað. Það ætti þó að vera auðveldara um vik seinni hluta ársins því flugfélagið Emirates býður þangað flug frá London gegnum Dúbai á tilboðsverði.

Hitastigið á Balí er indælt allan ársins hring. Mynd tata_aka_t
Hingað til hefur Emirates ekki flogið til Balí en nú skal prófa þá leiðina og þó ekki sé um beint flug að ræða er verðmiðinn á haus lægst 108 þúsund krónur frá London eða kringum 140 til 150 þúsund að meðtöldu flugi til London og til Íslands aftur. Það er allþokkalega sloppið hjá fyrirtaks flugfélagi og jafnvel möguleiki að dúllast í Dúbai á leiðinni.
Eins og sjá má á bókunarvél okkar hér að neðan má finna ýmis fantagóð gistitilboð á eynni fyrir þau ykkar sem þora að ferðast á þennan hátt. Tvær vikur á fjögurra stjörnu hóteli niður í 150 þúsund og fimm stjörnu hótel niður í 200 þúsund þann tíma.
Sem samtals gerir 450 þúsund á hjón eða par fyrir tvær vikur á Balí með haustinu. Það er gróflega sama verð og par greiðir fyrir svipaða ferð til Mallorca beint héðan.
Vefur Emirates hér.







