Þ ú ert á ferðalagi og týnir veskinu eða farsímanum. Góð ráð dýr við slíkar aðstæður og reglan oftar sú á flestum stöðum að veskinu eða símanum getur þú gleymt hið snarasta. Meira að segja á vinsælustu ferðamannastöðum á Ítalíu tekur lögregla ekki lengur niður upplýsingar um slíkt ef líkur þykja á að um stuld hafi verið að ræða. Til þess hafa þeir ekki tíma né mannafla.

Heilindi og heiðarleiki í Ljúblana

Heilindi og heiðarleiki í Ljúblana

En hversu ótrúlegt sem það nú er þá er íbúar minnst einnar borgar svo stálheiðarlegir að níu af hverjum tíu farsímum skila sér til eigenda sinna aftur.

Það er íbúar Ljúblana í Slóveníu af öllum stöðum og treður þannig niður öllum klisjum um óheiðarleika íbúa í Austur-Evrópu.

Aðrar tvær borgir þar sem góður möguleiki er á að fá aftur týnda hluti er í Seól í S.Kóreu og Toronto í Kanada en átta farsímum af hverjum tíu týndum var skilað þar aftur.

Það töluvert á skjön við tölur lögreglu í New York, Chicago, London, Amsterdam og Napolí svo örfá dæmi séu nefnd. Þar eru líkurnar að fá stolna eða týnda hluta aftur um það bil 1 á móti 1000.