F jórtán þúsund krónur fram og aftur til Bretlands er sallafínn díll á öllum tungumálum. Sjö sundkallar hvora leið fyrir sig. Slíkt er í boði með Icelandair frá Bretlandi til Íslands í október og nóvember. En ef okkur hér langar til Bretlands á sama tímabili…

skjáskot af breskum vef Icelandair

Jebbs, þú giskaðir réttilega á svarið við því. Við þurfum að punga út að lágmarki HELMINGI HÆRRI UPPHÆÐ eða kringum 29 þúsund krónur til og frá á sama tímabili.

Það er köld tuska í andlit íslenskra skattgreiðenda sem haldið hafa Icelandair á lofti síðustu misserin og árin.

Vissulega um sérstakt tímabundið tilboð til handa Bretunum að ræða en þetta er töluvert lægra verð en okkur býðst þá þegar sérstök tilboð til Bretlands eru í boði fyrir Frónlendinga. Lægsta verð sem við hér munum eftir til og frá hefur verið þetta átján til tuttugu þúsund og það þegar Wow Air var skæður keppinautur.

Ekkert í líkingu við það að finna í október eða nóvember héðan til Bretlands eins og sjá má á sjáskoti tvö hér til hægri.

Slíkt flokkast sem verðmismunun og þykir almennt ekki góð latína í bissness plús að slíkt er víða bannað. Þar á meðal innan Evrópusambandsins og EFTA-landanna:

As an EU national or resident you can’t be charged a higher price when buying products or services in the EU just because of your nationality or country of residence.

Dapurt prógramm.