F lest þau fyrirtæki sem sérhæfa sig í útgáfu ferðahandbóka, hvort sem er á netinu eða með bókaútgáfu, gefa reglulega út lista yfir góð ráð til ferðalanga sem hyggja á þvæling um heiminn.
Ein nýrri bókin í þessum flokki er frá útgáfufyrirtækinu Lonely Planet og heitir því fróma nafni: Best Ever Travel Tips.
Ritstjórn kíkti í eintak og víst er þar margt forvitnilegt að finna þó meginhluti svokallaðra „ráða” sé þegar á botninn er hvolft einungis heilbrigð skynsemi.
En heilbrigð skynsemi er kannski ekki sú sama hjá öllum og því kannski óvitlaust að lista nokkur atriði sem tiltekin eru sem þjóðráð á ferðalögum.
♥ Ekkert er frítt í heiminum og allra síst þau gjaldeyrisskiptafyrirtæki sem finna má á velflestum flugvöllum og í borgum heims. Mörg þeirra auglýsa sérstaklega gjaldfría þjónustu sína en það er einfaldlega ekki raunin. Fyrirtækin verða einfaldlega að hagnast á einhvern hátt og þau sem auglýsa sérstaklega að ekki sé tekið gjald fyrir að skipta milli gjaldmiðla hafa falið gjaldið inni í gengi viðkomandi mynta. Það er því alltaf þjóðráð að skipta gjaldeyri eða kaupa gjaldeyri hjá sínum viðskiptabanka ef mögulegt er því yfirleitt fást bestu kjörin þannig.
♥ Varla er til betri aðferð til að tryggja að ferðalagið verði yndislegt í alla staði en hafa með sér handspritt, eða sótthreinsunarefni af einhverjum toga, öllum stundum. Sérstaklega er þetta mikilvægt í löndum þar sem hreinlæti er ekki á pari við það sem gerist á vesturlöndum því snerting er langalgengasta smitleið sýkla og baktería manna á milli. Reyndin er líka víða sú að aðgengi að hreinu vatni er takmarkað og stundum alls ekkert.
♥ Reyndu að panta flug eins snemma og mögulegt er. Sagan nefninlega sýnir að þær vélar sem fyrstar fara á morgnana eru þær sömu og halda tímaáætlun langbest. Verði seinkun á einni einustu vél hefur það dómínóáhrif á allar aðrar vélar þann daginn.
♥ Ekki ganga út frá því sem vísu að pakkadílar séu endilega bestu kaupin. Raunin er sú í dag að til dæmis getur verið töluvert ódýrara að kaupa stakar lestarferðir milli borga eða landa í stað þess að kaupa til dæmis heila Evrópuferð í einu lagi. Netið hefur mjög breytt þessu og hvort sem um er að ræða lestir, flug eða hótel poppa oft upp sérstök tilboð á síðustu stundu.
♥ Aldrei láta sjá þig með borgarkort á almannafæri. Það er klárt merki til vafasamra aðila að þú ert nýr í bæ og því betra fórnarlamb en ekki. Stúderaðu kort áður en haldið er af stað og ef þörf er á að skoða það frekar sestu þá niður á kaffihúsi eða öðrum stað þar sem lítið fer fyrir þér. Svindl og svínarí alls kyns hefur færst í aukanna með erfiðari efnahag í mörgum löndum og glæpir almennt á uppleið.
♥ Af sama meiði er ráðið að húrra sér nokkrum sinnum í ljós áður en farið er á sólarslóðir. Sé eitthvað sem stendur meira upp úr á torgum suðrænna þjóða eru það skjannahvítir Íslendingar og að sama skapi er þá misyndismönnum ljóst að þarna fara ný fórnarlömb.
♥ Taktu tvö afrit/ljósrit af öllum mikilvægum pappírum; vegabréfi, flugmiðum og læknisvottorðum og ekki síður muna eftir að skrá kreditkortanúmer, neyðarnúmer og skrásetningarnúmer á dýrum hlutum eins og myndavélum. Skildu eitt afrit eftir hjá ættingjum eða vinum og taktu hin með þér og geymdu í læstu hólfi eða í snjallsímanum. Komi eitthvað upp á þarf ekkert að fara á taugum eða missa dýrmætan tíma að leita uppi númer eða skjöl sem brúka þarf.
♥ Klipptu neglurnar áður en lagt er í hann til þriðju heims þjóða. Það er Mekka fyrir bakteríur af ýmsu tagi að planta sér undir neglur og þaðan komast þær auðveldlega í allan mat og annað fýsilegt.
♥ Ráð er líka að dvelja ekki of lengi undir kókoshnetutré.
Lumar þú á þjóðráðum til ferðalaga? Ekki feimin að deila með okkur hinum.





