Hmmm. Fullur skilningur á því hér að nýtt íslenskt lággjaldaflugfélag þurfi að girða brók þétt upp að endaþarmi til að vera samkeppnishæft. En að ætla að bjóða 30% lægri laun en Wow Air, sem þó borgaði engin súperlaun, er ekki aðeins fráleitt heldur og ber vott um hreina og beina mannvonsku.

Svo Play ætlar að bjóða súperfargjöld frá Íslandi og til með því að borga skítalaun…

Vefmiðillinn Kjarninn komst yfir háleynilega fjárfestakynningu forsvarsmanna hins nýja flugfélags Play eins og lesa má um hér.

Þar er galdurinn við að láta íslenskt lággjaldaflugfélag ganga og sýna feitan arð á örskömmum tíma sá að greiða starfsfólki laun á pari við það sem almennt gerist í Póllandi. Ekkert út á Pólland að setja per se. En það eru ekki 30 þúsund Pólverjar að vinna á Íslandi af því að launin heimavið eru svona fín.

Þess utan greiddi Wow Air aldrei merkileg laun. Við átt samtöl við fjölda fyrrum starfsmanna Wow Air og eina ástæða þess að fólk var sátt og jafnvel ánægt var sökum þess að auðvelt var að bæta aukavinnutímum ofan á lágmarks vinnustundir. Það voru aukatímarnir sem færðu mánaðartekjurnar úr því að vera rétt fyrir ofan atvinnuleysisbætur og upp í sómasamlegar tekjur.

Kannski ekki furða að forráðamenn Play sjái fram á að flugfélagið verði tvöfalt verðmætara en Icelandair á þremur árum sléttum. Það auðvitað sáraeinfalt ef greiða á starfsfólkinu sultarlaun.

En hver vill eiga viðskipti við slíkt flugfélag?