Yfir þrjú hundruð viðskiptavinir skipafélagsins Royal Caribbean þurftu nýlega að eyða degi eða tveimur í vikusiglingu um karabíska hafið á klósettinu með niðurgang og leiðindi. Matareitrun virðist ástæðan og svo virðist sem slík eitrun sé næsta algeng hjá þessu vinsæla skipafélagi.

Fínt og flott í auglýsingum en matareitrun með tilheyrandi vibba virðist helst til algengt hjá Royal Caribbean. Mynd treVio
Fátt glataðra en sitja klofvega á klósetti klukkustundum saman í lúxussiglingu sem kostað hefur fleiri hundruð þúsund krónur. Það er jú ekki það sem lúxusskipafélögin auglýsa með dýrum ferðum sínum.
Matareitrun virðist samt fáránlega algengt vandamál hjá lúxusskipafélögum heimsins. Létt gúggl leiðir í ljós að alvarleg matareitrun gerist tvisvar til þrisvar á ári hjá fyrirtæki á borð við Royal Caribbean og í hvert sinn þurfa fleiri hundruð manns að dvelja á klósettinu með allt niðrum sig stóran hluta ferðarinnar.
Sé einhver efins um hversu algengt er að farþegar Royal Caribbean njóti klósettsetu lengur en þeir njóta setu á þilfari með sætan kokteil og útsýn yfir hið yndislega Karíbahaf ætti að nægja að gúggla fyrirtækið. Leitarorðin „Royal Caribbean + food poisoning“ skila AÐEINS yfir 77 þúsund greinum þegar þetta er skrifað.
Hvers vegna gengur svona illa að reiða fram mat í skipum lúxusfyrirtækja sem ekki er mengaður af skít og kanil er ómögulegt að segja. Ein ástæða gæti samt vel verið að hér eins og annars staðar eru greidd lágmarkslaun fyrir mikla vinnu. Hvers vegna að vanda sig og þrífa hendur eftir klósettferð þegar þú ert með 350 kall á tímann…







