Ólíkt reykvískum borgarstjóranum sem hefur það sem markmið að senda alla íbúa miðborgarinnar út í óbyggðir til að rýma fyrir erlendu ferðafólki er staðan aðeins öðruvísi í Feneyjum. Þar reynir borgarstjóri þeirrar borgar nú að fá samþykkt að eftirleiðis verði ferðafólk sektað fyrir að þann mikla glæp að setjast niður hist og her.

Fámennt á götum Feneyja. Allavega miðað við eðlilegan dag að sumarlagi þessa síðustu og verstu.
Ók, kannski ekki verið að bera saman epli og epli í þessu tilfelli. Því þótt mörgum finnist nóg um ferðamannafjöldann í íslensku höfuðborginni og leiguverð í miðborginni sé fjarri því lengur á færi neins nema tugmilljónamæringa þá eru Feneyjar í enn verri málum. Þar bókstaflega ólíft vegna fjöldatúrisma og hefur verið um nokkra hríð.
Borgaryfirvöld, og reyndar ítölsk stjórnvöld líka, reynt ýmislegt til að stemma stigu við tugþúsundum ferðamanna sem koma daglega til Feneyja. En allt kemur fyrir ekki. Fjöldi ferðamanna til borgarinnar eykst ár frá ári þrátt fyrir að upplifunin sé töluvert minni en góð og verðlag allt eftir því.
Nú ætlar borgarstjórnin að prófa nýtt trix; banna með öllu að fólk setjist niður annars staðar en á fokdýrum veitingastöðum. Og sektin ekkert smáræði við slíkum glæp eða litlar 60 þúsund krónur. Svona svipað og erlent lið hérlendis þarf að borga ef upp kemst að það hefur spólað niður þúsund ára gamlar mosabreiður við Herðubreið.
Óvitlaus hugmynd. Ávísun á digra peninga í borgarsjóð því rými á veitingastöðum borgarinnar er takmarkað og ekki séns í helvíti að þar geti allir sest niður og notið lífs á góðum degi. Og þramm um þessa borg eins og aðrar tekur toll og því finnst mörgum kjörið að kaupa gelato og setjast niður á gangstéttarbrún.
Sá ís gæti eftirleiðis orðið töluvert dýrari en nokkurn grunaði ef lögreglan nær þér við verknaðinn.







