Þangað er reyndar ekki komist í beinu flugi héðan en ef þig munar ekkert um eina millilendingu eða svo munu peningarnir þínir endast lengst á Algarve í Portúgal þetta sumarið.

Fleira sem skiptir máli erlendis en ódýrt flug eða gisting :)

Fleira sem skiptir máli erlendis en ódýrt flug eða gisting 🙂

Þetta staðfesta tölur bresku póstþjónustunnar sem merkilegt nokk birtir árlega lista yfir þá sumarleyfisstaði sem hvað ódýrast er að dvelja á. Það mælt með því að taka saman í körfu margt það sem fjölskyldur á faraldsfæti gætu þurft að nota á ferðum sínum og samtalan ræður svo sætaskipan borga og staða.

Meðal þess sem finnst í körfunni er matur ýmis konar og þar meðal annars kvöldverður fyrir tvo, drykkir, sólarvörur og annað smálegt sem velflestir brúka á ferðum sínum. Góð karfa sem dekkar margt og gefur ágæta mynd af hugsanlegum kostnaði við tímabundna dvöl erlendis. Þetta nýtist okkur Íslendingum nokkuð vel þó hafa beri í huga að gengi punds gagnvart evru hefur áhrif á útreikninga Bretanna.

Algarve kemst á toppinn nú vegna þess að verðlag þar um slóðir er nú tæplega sex þúsund krónum lægra per körfu en það var 2015. Þar kostar títtnefnd karfa nú 5.184 krónur og munar nú þrjú hundruð krónum á körfunni þar og í Búlgaríu sem kemur næst.

Á Spáni dugar gjaldeyrinn lengst á Costa del Sol. Verð á körfunni þar 6.294 krónur eða rúmlega þúsund krónum dýrari en á Algarve. Þar rétt á eftir kemur Marmaris í Tyrklandi en pakkinn þar kostar 6.862 krónur.

Hvað borgir varðar er ódýrast að eyða tíma í Búdapest þar sem karfan kostar 6.964 krónur og í Prag í Tékklandi þar sem góssið fæst á 7.103 krónur. Vestanhafs kostar karfan áberandi minnst í Orlandó eða 12.114 krónur.

Sé litið á dýrustu staðina kemur Dúbai illa út. Ferðakarfan þar kostar litlar 26.578 krónur eða rúmlega 400% dýrari en á Algarve. Svipað kostar pakkinn í Singapor og á Bahamas-eyjum.