Það vita ferðavanir að hrein martröð er að leita að og finna lægstu fargjöld sem Icelandair auglýsir á flugi hingað og þangað.  Til þess þarf vikufrí frá vinnu, draga fyrir gluggatjöldin, taka símann úr sambandi og leita og leita og leita og leita. Vorum við búin að segja leita?

Lægsta verð í boði til nokkurra áfangastaða Icelandair. En taktu frá nokkrar vikur til að finna flug á þessu verði. Skjáskot

Lægsta verð í boði til nokkurra áfangastaða Icelandair. En taktu frá nokkrar vikur til að finna flug á þessu verði. Skjáskot

Markaðssetning og bókunarvél Icelandair er á pari við að matvöruverslun auglýsi nýjar íslenskar kartöflur á útsöluverði en feli svo eina pokann sem til er af þessum nýju ódýru kartöflum neðst undir hrúgu af lélegri og mun dýrari kartöflum.

Víst er að Neytendastofa eða Neytendasamtökin og jafnvel fésbókin fengju meldingar um slíkt háttalag verslunar enda tæknilega um óeðlilega viðskiptahætti að ræða. Sekt varðar við slíku lögum samkvæmt.

En merkilegt nokk gerist ekkert varðandi Icelandair. Þeir mega auglýsa lægsta mögulega verð á hverri flugleið án þess að tiltaka á neinn hátt hvenær hægt er að fá flug á því verði. Það gæti verið flug í næstu viku, kvöldflug 1. apríl eða morgunflug 25. desember. Eða, eins og við höfum stundum bent á, að umrætt lægsta fargjald flugfélagsins finnst ekki heilt ár fram í tímann.

Ekkert laust flug á tilteknum degi en í stað þess að bjóða aðra ferðamöguleika kemur Icelandair með afsökun og biður viðkomandi að leita aftur og aftur og aftur og aftur.

Ekkert laust flug á tilteknum degi en í stað þess að bjóða aðra ferðamöguleika kemur Icelandair með afsökun og biður viðkomandi að leita aftur og aftur og aftur og aftur.

Þó ekkert sé hægt að fullyrða þá eru þau ekki mörg flugfélögin sem bjóða fólki árið 2016 upp á að leita aðeins eina viku í senn að flugi. Ekkert hægt að fletta eða bera saman. Bara leita aftur viku eftir viku eftir viku eftir viku.

Oftar eru flugfélög nútímans ekki að fela sín lægstu fargjöld eða sýna að minnsta kosti fargjöld í mánuð í senn. Lægsta fargjald Wow Air finnst á augabragði til allra áfangastaða næstu tólf mánuði þessi dægrin þó reyndar það hafi nú ekki alltaf verið svo. SAS, Norwegian og easyJet bjóða fólki að leita sérstaklega að lægstu fargjöldum langt fram í tímann. Sama uppi á tening hjá AirBerlin, Transavia, Eurowings, Vueling, British Airways, Wizz Air og langflestum öðrum flugfélögum sem bjóða flug til og frá Íslandi.

En eina fyrirtækið sem ef á lífi sökum þess að lífeyrissjóðir landsmanna hlupu undir bagga þegar reksturinn var kominn í þrot leyfir sér að fela öll sín lægstu fargjöld og enginn segir neitt.

Þetta er hörmuleg þjónusta! Væri svo vitlaust að færa þetta til 21. aldarinnar Icelandair eins og sumir benda ykkur góðfúslega á? Er viðskiptavinurinn ekki í fyrsta sæti hjá ykkur? Eða mætir hann afgangi eins og almennt launafólk gerir hjá forstjóra Icelandair þegar sá klæðir sig í föt formanns Samtaka atvinnulífsins…