Fimm mínútum eftir að tilkynnt var um andlát Fidel Castro á Kúbú birtist tíst frá komandi forseta Bandaríkjanna sem bendir til að Donald Trump muni blása ísköldu á alla þíðu sem Barack Obama hefur komið á milli þjóðanna. Það sannarlega góðar fréttir.

Fyrstu farþegaþoturnar frá Bandaríkjunum farnar að skila af sér túristum á Kúbu. Kannski verið sett stopp á það strax eftir áramót. Mynd JetBlue

Fyrstu farþegaþoturnar frá Bandaríkjunum farnar að skila af sér túristum á Kúbu. Kannski verið sett stopp á það strax eftir áramót. Mynd JetBlue

Fyrstu vélar bandarískra flugfélaga um 50 ára skeið lentu í Havana á sunnudag á sama tíma og hálf þjóðin var saman komin á Byltingartorginu í Havana til að votta Castro hinstu virðingu. Þann dag lentu vélar JetBlue og American Airlines með bandaríska ferðamenn sem eru þeir fyrstu sem til landsins koma með áætlunarflugi eftir að Barack Obama ákvað að koma samskiptum við Kúbu í eðlilegan farveg.

En nú virðist næsti forseti ætla að draga í land með allt saman. Trump hatar alla sem sleikja ekki punginn á honum á fimm mínútna fresti og bæði Obama og Kúba sannarlega í þeim hópi. Það má því búast við að The Donald loki strax aftur á áætlunarferðir Bandaríkjamanna til Kúbu strax eftir áramót.

Sem eru firna góðar fréttir fyrir okkur hin sem ekki teljumst til Bandaríkjamanna. Það þarf jú ekki flókin vísindi til að geta sér til um að Kaninn eyðileggur Kúbu á fimm mínútum sléttum eins og hann hefur gert á helstu ferðamannastöðum Mexíkó, Kosta Ríka, Jamaíka og víðar í og við Karíbahaf.

Þar meinum við að hvar sem finna má mikinn fjölda bandarískra ferðamanna, sem í meirihluta tilfella eru vel í holdum, byrja fljótlega að rísa bandarísk hótel á hótel ofan þar sem allt er innifalið og ekkert er bannað.

Sé hjá því komist er það gleðiefni og hér gæti Trump ræfillinn loks komið að notum. Kannski getum við enn heimsótt Kúbu að ári liðnu og enn upplifað þokkalega eðlilega stemmningu í stað þess að sjá berassaða, blindfulla Bandaríkjamenn skaufast um allar trissur og gera vesen.