Bandaríkjamenn eru að taka til í sínum ranni þó framfarir teljist í barnaskrefum. Senn líður að lokum þess að ferðamenn í Flórída geti farið um geysifalleg fenjasvæði fylkisins á hinum frægu flatbotna fenjabátum.

Babb í bát. Á næstu árum verður ekki lengur hægt að skoða fenjasvæði Flórída eins og áður. Mynd Rich Jacques
Bátarnir eru þessir skrýtnu en skemmtilegu flatbotna bátar fenjamanna vestanhafs sem drifnir eru áfram af risastórum viftum og þekkjast óvíða annars staðar í heiminum. En nú er komið babb í bát.
Það er vissulega auðvelt að „svífa“ um fen Flórída á fenjabátunum frægu en rannsóknir hafa þó sýnt að hávaðinn í þeim hefur afar neikvæð áhrif á dýralíf í fenum Everglades. Þar segja fræðingar að hávaðinn úr þeim fjölda fenjabáta sem ferja ferðamenn um fenin hafi alvarlega neikvæð áhrif á 60 prósent þeirra dýra og fiska sem hér finnast.
Þær rannsóknir tíu til fimmtán ára gamlar en nú loks hafa menn sett stól fyrir dyr útgerðarmanna. Engin ný leyfi verða veitt á fenjasvæðunum eftirleiðis en þeir elstu í bransanum fá þó að klára sitt. Það er að segja þeir aðilar sem fengu leyfi fyrir árið 1986. Þeim fækkar hraðar en íbúum í Mjóafirði og á næstu fimm árum er talið að öll útgerð loftbáta á fenjasvæðunum leggist af.
Það er því Flórídaferð á döfinni hjá þér ef draumurinn er að svífa um svæðið í slíku farartæki meðan hægt er.







